Wednesday, December 17, 2008

ammli og jól

Jæja kellan nánast búin að klára jólapakkana og allt að smella. Kristján fer suður á fimmtudaginn og ég ætla að senda hann með pakkana heim til mömmu þannig að það neyðist allir til að gera sér ferð þangað. Afmælisveislan hennar Brynju verður á sjálfan afmælisdaginn hennar þann 20.des. Finnst ömurlegt að hafa ekki fjölskylduna mína og vini fyrir sunnan. En þá verð ég bara að hafa síðbúna afmælisveislu þegar ég kem næst í bæinn, þó það verði eftir nokkra mán kannski, eru ekki allir til í það?:D

En ég er samt spennt fyrir veislunni hennar hérna en öll smeik hvernig ég ætla að "púlla" þetta. Ég kann alls ekki að skeyta og gera flotta afmlístertu og svo þarf
ég að þrífa allt og baka allt ein af því að Kr verður fyrir sunnan. Er að spá í að plata Karen til að skeyta eitthvað því eins og ég sagði henni þá er hún með óþolandi fullkomnunaráráttu:)

Mjög gaman í Oni þessa dagana, var að fá nýjar vörur og jólahugur kominn í fólk. Vona samt að ég fái bara vinnu sem fyrst. Er farin að þrá að vera launþegi og fara útá vinnumarkaðinn. Það kemur þá bara í ljós hvað ég geri með Oni mína.

Síðan ég vaknaði er ég með bullandi skíðaþrá. Held að það sé möst að plata kallinn á skíði um jólin (lofa að detta ekki í lyftunni my love).

Ps.var að setja myndir á babyland, það má alveg biðja um aðgang að síðunnni..mig sko.

7 comments:

Anonymous said...

Það gæti nú komið vindhviða bara á þig ef þú ferð í lyftuna. Eru annars ekki allir fyrir sunnan?
KI

Anonymous said...

Satt best að segja þá myndi ég ekki nenna að þrífa allt fyrir eitt afmæli. Það verður allt aftur skítugt þegar það er búið. Bara moppa yfir og hafa fínt á yfirborðinu :) fólk skemmtir sér örugglega jafnvel í afmælinu fyrir því. Frekar að þrífa þegar afmælið er búið og þá er allt fínt fyrir jólin. Mikið væri ég til í að koma í afmælið til hennar Brynju og líka þar sem ég hef nú aldrei komið til ykkar austur :s
Gangi þér vel með þetta alltsaman og innilega til hamingju með snúlluna á laugardaginn.

Sólrún

Anonymous said...

Þetta hljómaði frekar illa "fyrir EITT afmæli". Var ekki að gera lítið úr fyrsta afmælinu hennar Brynju enda er það fyrsta alltaf það merkilegasta

Íris Dögg said...

KI: Það kom vindhviða, það er ekki mér að kenna að krakkinn fyrir aftan mig lenti ekki í því;)

Sólrún: hahaha nei tók því ekki illa, en auðvitað vil maður hafa allt fullkomið:)

Dana said...

Ég vildi að ég gæti komið í afmæli en eftir áramót myndi ég svosem líka missa af því!! Skelltu mér bara á skype og skal vera gellan í tölvunni í afmælinu :D hahaha!

Anonymous said...

Get ég fengið lykilorðið?

kv. Sjöfn Kristjánsdóttir

Anonymous said...

Oh Íris mín ég gleymi ekki fyrsta afmælinu hjá Írisi minni, sumir töluðu um fermingarveisluna. Ég var bara svo að passa mig á að hafa þetta almennilegt. En ég mæli með því að þú chillir bara og sért svo sannarlega ekki að þrífa fyrir svona. Ég fæ yfirleitt 2 vikna kvíðakast fyrir afmæli en það er óþarfi! sjáumst á laugardaginn, kveðja Dröfn