Tuesday, March 17, 2009

"mía mín" :)

Já það er það sem hún kallar sig þegar ég segi henni að segja Brynja,Mía. Annars er hún að brillera þessa dagana. Hún veit sko alveg hvað hún vil. Bendir á það sem hún vill og ef hún vil fara út þá kemur hún með skóna sína, húfu og úlpu. Þegar pabbi hennar opnar útidyrahurðina þá segir hún alltaf brrrrr:) Það eru alltaf að bætast fleiri orð í safnið. Núna kann húm að segja:
Mamma,pabbi,dudda,sjáðu,datt,bíbí,sokkar,sex,sjö,voff,mjá,nei,búa,sitja.
Svo er ég pottþétt að gleyma einhverju.

Er búin að liggja heima veik alla vikuna og er ennþá heima. Brynja grét í alla nótt, hún er sem sagt búin að smitast. Komin með hita, hósta og kvef.

Eftir að ég hætti á faceinu þá er ég miklu minna í töllunni. Sem er bara gott. Ég tók bloggrúnt eitt kveldið og fannst voða gaman að lesa blogg, sem var eiginlega alveg dottið upp fyrir hjá mér. Ein setning er búin að vera föst í mér síðan ég las blogg hjá einum Borgfirðingi: Lokum tölvunum og leikum okkur við börnin okkar, það er miklu skemmtilegra:)
Glöggir lesendur hugsa eðlilega núna: bíddu ertu ekki við tölluna að blogga?? uuuu jú en barnið er sofandi:)

bæjó:)

4 comments:

karen said...

ég veit hvaða orði þú gleymdir.. Karen (kaka)
:D

þú varst búin að lofa að vinna í þessu að kenna henni þetta:P

Íris Dögg said...

uuu.. nei. Þú kennir henni það:)

(þá kannski hittir maður þig oftar)

Heiða said...

Ég þarf að kenna henni að segja Heiða.Hún verður fljót að læra það,við erum svo góðar vinkonur;)

Íris said...

Heiða: já það er ekki spurning:)